Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Þegar hún heyrði fyrst þessa sögu af meistaranum frá Nasaret spurði hún prestinn hvort Jesús hefði verið að gera at í lærisveinunum. Brúnaþungur presturinn með flösuskafl á herðunum sagði að ekki væri viðkunnalegt að tala um at þegar um væri að ræða trúarlega texta. Hún gaf sig ekki. Lærisveinarnir þekktu ekki Jesú upprisinn því að þeir vissu ekki betur en að fyrirliði þeirra væri horfinn. En þarna var hann á sveimi í kringum drengina sína með dularfullt bros á vör. Svo áttuðu þeir sig. Meistarinn grillaði fisk í snatri og bauð þeim en sagðist hafa gleymt frönskunum. Lærisveinarnir hlógu feimnislega.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: