Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Frið læt ég yður eftir, minn frið gef ég yður, voru orð sem hún lagði á minnið sem barn. Orð meistarans frá Nasaret sem hún sagði vera dýrmæta gjöf og fann fljótt að það var kærleikurinn sem fleytti friðnum áfram. Kærleikurinn fólst í því að setja sig í spor annarra og rétta fram kærleiksríka hönd sem var full af friði. Úr hversdeginum gátu hrokkið neistar sem voru efni í ófriðarbál en þá var listin sú að henda þá á lofti með kærleikskossi. Margir sögðu hana vera óraunsæja en henni fannst gott að vera andans og friðarins barn andspænis höfðingjum heimsins.