Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Ungi presturinn framtakssami var ósáttur við guðspjall dagsins. Fannst það ósannsanngjarnt í garð þeirra sem sinntu því sem honum fannst vera skylda. Skyndilegt matarboð á veitingastaðinn „Himnesk jörð“ kom á versta tíma því hann hugðist skoða nýkeypta sumarbústaðalóð. Sama átti við um fjölmiðlakonuna sem var nýbúin að kaupa flottustu reiðitygin. Og þau öll handgerð af frægri listakonu. Svo fannst honum það ekki laust við andfemínisma að tengja nýlegt parasamband við einhverjar annir og hugsaði feðraveldinu þegjandi þörfina. Prestinum unga fannst umsnúningur gestalistans vera slaufun og virðingarleysi. Hann beit snöggt í eina með öllu og ákvað að skella í eina gæludýramessu.