Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes, bróður hans, og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra, ásjóna hans skein sem sól og klæði hans urðu björt eins og ljós. Og Móse og Elía birtust þeim og voru þeir á tali við Jesú. Pétur tók til máls og sagði við Jesú: „Drottinn, gott er að við erum hér. Ef þú vilt skal ég gera hér þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.“
Meðan Pétur var enn að tala skyggði yfir þá bjart ský og rödd úr skýinu sagði: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á. Hlýðið á hann!“
Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta féllu þeir fram á ásjónur sínar og hræddust mjög. Jesús gekk til þeirra, snart þá og mælti: „Rísið upp og óttist ekki.“ En er þeir hófu upp augu sín sáu þeir engan nema Jesú einan.
Á leiðinni ofan fjallið bauð Jesús þeim: „Segið engum frá sýninni fyrr en Mannssonurinn er risinn upp frá dauðum.“

Matteusarguðspjall 17.1-9

Hundrað orða hugleiðing

Stundum eru landamærin milli þessa heims og annars ekki ljós. Þú finnur hvernig þau sveiflast hvort heldur í vöku eða draumi. Lífið er umlukið öðru lífi eða býr í öðru lífi eins og hús í húsi. Þú slæst í för með lærisveinum Jesú á þeim degi þegar hann stígur út fyrir landamæri þessa lífs og inn í gáttir annars. Hann ummyndast, breytist. Ljós streymir fram og mjúk birta enda er hann ljós heimsins. Í birtunni heyrist rödd sem segir okkur að hlusta á fagnaðarerindið. Það er ekkert að óttast þegar birta eilífðarinnar vefur þig örmum á göngu þinni í heiminum.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir