Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Daginn eftir sér Jóhannes Jesú koma til sín og segir: „Sjá, Guðs lamb sem ber synd heimsins. Þar er sá er ég sagði um: Eftir mig kemur maður sem er mér fremri því hann var til á undan mér. Sjálfur þekkti ég hann ekki. En til þess kom ég og skíri með vatni að hann opinberist Ísrael.“ Og Jóhannes vitnaði: „Ég sá andann koma af himni ofan eins og dúfu og hann nam staðar yfir honum. Sjálfur þekkti ég hann ekki en sá er sendi mig að skíra með vatni sagði mér: Sá sem þú sérð andann koma yfir og nema staðar á, hann er sá sem skírir með heilögum anda. Þetta sá ég og ég vitna að hann er sonur Guðs.“

Jóhannesarguðspjall 1.29-34

Hundrað orða hugleiðing

Sjálfsöruggt bros rauf alvörufullan svip nokkrum sinnum og hún sagðist alltaf hafa átt í vandræðum með þetta að einhver bæri synd heimsins eins og texti dagsins sagði. Hún horfði smástund niður í gólfið eins og orð hennar væru skrifuð á slitið eikarparketið á safnaðarheimilinu og sagði síðan hraðmælt að hún hefði aldrei beðið neinn um að bera misgjörðir sínar enda væri hún sjálfstæð kona í fyrirtækjarekstri og tæki daglega stefnumótandi ákvarðanir. Sessunautur hennar sagði hana ekki vera stadda á aðalfundi himnaríkis og mannskepnan væri nú öll sett í þennan syndapakka án andmælaréttar. Sennilega væri syndaburður snöggtum meira fyrirtæki en píanóburður.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir