Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Jesús var að kenna á hvíldardegi í samkundu einni. Þar var þá kona nokkur. Í átján ár hafði hún verið sjúk. Hún var kreppt og alls ófær að rétta sig upp. Jesús sá hana og kallaði hana til sín og sagði við hana: „Kona, þú ert laus við sjúkleik þinn!“ Þá lagði Jesús hendur yfir hana og jafnskjótt gat hún rétt úr sér og lofaði Guð.
En samkundustjórinn reiddist því að Jesús læknaði á hvíldardegi og mælti til fólksins: „Sex daga skal vinna, komið þá og látið lækna ykkur og ekki á hvíldardegi.“
Drottinn svaraði honum: „Hræsnarar, leysir ekki hver ykkar á hvíldardegi naut sitt eða asna af stalli og leiðir til vatns? En þessi kona, sem er dóttir Abrahams og Satan hefur fjötrað full átján ár, mátti hún ekki leyst verða úr fjötrum þessum á hvíldardegi?“ Þegar Jesús sagði þetta urðu allir mótstöðumenn hans sneyptir en allt fólkið fagnaði yfir öllum þeim dýrðarverkum er hann gerði.

Lúkasarguðspjall 13.10-17

Hundrað orða hugleiðing

Það var hressandi að þrífa bílinn eftir norðurferðina á þvottaplaninu. Ákvað síðan að fara í andlegu ræktina. Við vegginn stóð kona nokkur, kengbogin í baki og svipdöpur. Meistarinn frá Nasaret lagði hendur yfir hana og hún rétti úr sér. Andlit hennar ljómaði eins og himininn. Einhverjir sögðu að lækningaverk ætti ekki að gera á helgidegi. Væri andstætt lögum guðs og manna. Meistarinn sagði þetta hræsni enda víluðu þau ekki fyrir sér að þvo og bóna bílana á helgidögum. Spegla sig svo í þeim. Hneyksluðust á að kærleikurinn væri sterkari en þvottaplanið. Skömmustusvipur malbikaði andlit þusaranna en fólkið fagnaði dýrðarverkum meistarans.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir