Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Snemma morguns kom hann aftur í helgidóminn og allt fólkið kom til hans en hann settist og tók að kenna því. Farísear og fræðimenn koma með konu, staðna að hórdómi, létu hana standa mitt á meðal þeirra og sögðu við Jesú: „Meistari, kona þessi var staðin að verki þar sem hún var að drýgja hór. Móse bauð okkur í lögmálinu að grýta slíkar konur. Hvað segir þú nú?“ Þetta sögðu þeir til að reyna hann svo þeir hefðu eitthvað að ákæra hann fyrir. En Jesús laut niður og skrifaði með fingrinum á jörðina.
Og þegar þeir héldu áfram að spyrja hann rétti hann sig upp og sagði við þá: „Sá ykkar sem syndlaus er kasti fyrstur steini á hana.“ Og aftur laut hann niður og skrifaði á jörðina. Þegar þeir heyrðu þetta fóru þeir burt, einn af öðrum, öldungarnir fyrstir. Jesús var einn eftir og konan stóð í sömu sporum.
Hann rétti sig upp og sagði við hana: „Kona, hvað varð af þeim? Sakfelldi enginn þig?“
En hún sagði: „Enginn, Drottinn.“
Jesús mælti: „Ég sakfelli þig ekki heldur. Far þú. Syndga ekki framar.“

Jóhanessarguðspjall 8.2-11

Hundrað orða hugleiðing

Ég er alltaf með fyrsta steininn í vasanum. Svona til öryggis. Innst inni vona ég að hann verði aldrei notaður. En hann er ágæt áminning. Þegar allt ætlar að ganga af göflunum í samfélaginu út af óréttlæti og spillingarsukki tek ég um fyrsta steininn. Hugsa um hvort ég eigi ekki að grýta honum inn í kommentakerfið. Láta vaða. Hugaræsingurinn víkur oftast rólega fyrir skilningi. Rifja upp: þú skalt ekki stela … þú skalt ekki … Les það sem meistarinn skrifaði í jörðina. Var það hlutabréfavísitala eða kærleikur? Heyri meistarann segja: Ég sakfelli þig ekki. Vertu frjáls – mundu orð mín.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir