Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin.

Guðspjall

Sex dögum fyrir páska kom Jesús til Betaníu þar sem Lasarus var, sá er hann vakti frá dauðum. Þar var honum búinn kvöldverður og Marta gekk um beina en Lasarus var einn þeirra sem að borði sátu með honum.Þá tók María pund af ómenguðum, dýrum nardussmyrslum og smurði fætur Jesú og þerraði með hári sínu fætur hans. En húsið fylltist ilmi smyrslanna. Segir þá Júdas Ískaríot, einn lærisveina hans, sá er mundi svíkja hann: „Hví voru þessi smyrsl ekki seld fyrir þrjú hundruð denara[ og gefin fátækum?“ Ekki sagði hann þetta af því að hann léti sér annt um fátæka heldur af því að hann var þjófur. Hann hafði pyngjuna og tók af því sem í hana var látið. Þá sagði Jesús: „Lát hana í friði. Hún hefur geymt þetta til greftrunardags míns.Fátæka hafið þið ætíð hjá ykkur en mig hafið þið ekki ávallt.“

Nú frétti allur fjöldi Gyðinga af því að Jesús væri í Betaníu og þeir komu þangað, ekki aðeins hans vegna heldur og til að sjá Lasarus sem hann hafði vakið frá dauðum. Þá ákváðu æðstu prestarnir að taka einnig Lasarus af lífi því vegna hans sneru margir Gyðingar baki við þeim og fóru að trúa á Jesú.

Degi síðar frétti hinn mikli mannfjöldi, sem kominn var til hátíðarinnar, að Jesús væri að koma til Jerúsalem. Fólk tók þá pálmagreinar, fór út á móti honum og hrópaði:

„Hósanna!

Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins,

konungur Ísraels!“

Jesús fann ungan asna og settist á bak honum, eins og skrifað er:

Óttast ekki, dóttir Síon.

Konungur þinn kemur

og ríður ösnufola.

Lærisveinar hans skildu þetta ekki í fyrstu en þegar Jesús var dýrlegur orðinn minntust þeir þess að þetta var ritað um hann og að þeir höfðu gert þetta fyrir hann.

Jóhannesarguðspjall 12.1-16

Hundrað orða hugleiðing

Lasarus hefði eflaust verið tekinn tali af stjörnuþáttastjórnendum veraldar væri hann á lífi nú. Þau voru ekki mörg sem bjuggu yfir þeirri reynslu sem hann átti. Verið dáin og reist upp til lífs. Sú saga flaug víða. Gott efni í viðtal. Heilan þátt á besta tíma. Nú situr hann til borðs með þeim sem kallaði hann til lífsins og það er þéttsetið. Lasarus er kröftug auglýsing um kærleiksmátt frelsarans. Húsið fyllist ilmi upprisunnar en samtímis líða undarleg orð hjá. Forvitin augu bíða óþreyjufull, sum elskumjúk, önnur þunguð dauðanum. Lasarus, sönnun himinsins, í skotlínu valdsins. Óttastu ekki, treystu meistaranum frá Nasaret.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir