Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

„Símon, Símon, Satan krafðist að fá að sælda yður eins og hveiti svo að hismið kæmi í ljós. En ég hef beðið fyrir þér að trú þín þrjóti ekki. Og styrk þú trúsystkin þín þegar þú ert snúinn við.“ En Símon sagði við hann: „Drottinn, ég er reiðubúinn að fylgja þér bæði í fangelsi og dauða.“ Jesús mælti: „Ég segi þér, Pétur: Áður en hani galar í dag munt þú þrisvar hafa neitað því að þú þekkir mig.“

Lúkasarguðspjall 22.31-34

Hundrað orða hugleiðing

Meistarinn frá Nasaet sá í gegnum hann og hraðlas pésann mig. Vissi að tískuharðstjórar hversdagsleikans myndu reyna á þolrifin og afhjúpa alla skinhelgina og vingulsháttinn þegar við svifum um með umhyggjusaman hátignarsvip í opinberum samkvæmum og teldum okkur hafa almættið í rassvasanum. Augnaráð hans brenndi sýndarmennskuna snögglega til ösku og hennar í stað skaust upp kærleiksstyrkur öðrum til góða. Auðvitað hafði hann eins og ég lofað öllu fögru en meistarinn brosti elskulega til okkar og gráum leiknum var lokið. Sá að þyngslalegur svipur sólbrunninna febrúarandlita á föstunni væri klént leikrit sett upp í örvæntingu þjáðra sálna. Og meistarinn faðmaði okkur.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir