Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin.

Guðspjall

Þá kom til Jesú fræðimaður einn. Hann hafði hlýtt á orðaskipti þeirra og fann að Jesús hafði svarað þeim vel. Hann spurði: „Hvert er æðst allra boðorða?“ Jesús svaraði: „Æðst er þetta: Heyr, Ísrael! Drottinn, Guð vor, hann einn er Drottinn. Og þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og öllum mætti þínum. Annað er þetta: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Ekkert boðorð annað er þessum meira.“ Fræðimaðurinn sagði þá við Jesú: „Rétt er það, meistari, satt sagðir þú. Einn er Guð og enginn er Guð annar en hann. Og að elska hann af öllu hjarta, öllum skilningi og öllum mætti og elska náungann eins og sjálfan sig, það er öllum brennifórnum og sláturfórnum meira.“ Jesús sá að hann svaraði viturlega og sagði við hann: „Þú ert ekki fjarri Guðs ríki.“ Og enginn þorði framar að spyrja hann.

Markúsarguðspjall 12.28-34 (18. sunnudagur eftir þrenningarhátíð)

Hundrað orða hugleiðing

Þar sem elskan er tvinnuð saman í einn þráð en þó eru þeir tveir: Guð og maður. Elska. Hún er ofar öllum skilyrðum og reglum sem mannlegt félag setur. Þess vegna var þessi fræðimaður ekki svo fjarri ríki Guðs. Auðvelt er að elska annað fólk þegar það dugar okkur vel. Sama á við um elsku til Guðs þegar allt leikur í lyndi. En hvað þegar mótlæti knýr dyra? Gullið reynist í ofninum, sagði meistari Vídalín. Og elskan til Guðs í mótganginum. Hver gengur ekki um dyr mótlætis á ævigöngunni? Meðvindurinn er þó sterkari út allt lífið – elskan sterkari en mótlætið.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir