Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir hefur eilíft líf. Ég er brauð lífsins. Feður ykkar átu manna í eyðimörkinni en þeir dóu. Þetta er brauðið sem niður stígur af himni. Sá sem etur af því deyr ekki. Ég er hið lifandi brauð sem steig niður af himni. Hver sem etur af þessu brauði mun lifa að eilífu. Og brauðið er líkami minn sem ég gef heiminum til lífs.“

Jóhannesarguðspjall 6.47-51

Hundrað orða hugleiðing

Þegar trúmál bar á góma dró hann sig í hlé og lét sér nægja að hlusta á aðra. Honum fannst trúin vera einkamál. Sjálfur trúði hann einlæglega innst í hjarta sínu og var fylgismaður meistarans frá Nasaret því að honum fannst stefnuskrá hans vera góð vegna þess að hún snerist um betra líf fyrir heiminn. Og sálarfrið fyrir manneskjuna. Samt skildi hann ekki að meistarinn þyrfti að ganga veg þjáningarinnar nema þá að hann væri að sýna samstöðu með öllum sem þjást í styrjöldum. Vonarrík orð meistarans nægðu honum því þá var hann andlega mettur og kominn í gátt eilífðarinnar.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir