Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Allir tollheimtumenn og bersyndugir komu til Jesú að hlýða á hann en farísear og fræðimenn ömuðust við því og sögðu: „Þessi maður tekur að sér syndara og samneytir þeim.“

En Jesús sagði þeim þessa dæmisögu: „Nú á einhver yðar hundrað sauði og týnir einum þeirra. Skilur hann ekki þá níutíu og níu eftir í óbyggðinni og fer eftir þeim sem týndur er þar til hann finnur hann? Og glaður leggur hann sauðinn á herðar sér er hann finnur hann. Þegar hann kemur heim kallar hann saman vini sína og nágranna og segir við þá: Samgleðjist mér því að ég hef fundið sauðinn minn sem týndur var. Ég segi yður, þannig verður meiri fögnuður á himni yfir einum syndara, sem tekur sinnaskiptum, en yfir níutíu og níu réttlátum sem þurfa þess ekki við.

Eða kona sem á tíu drökmur og týnir einni drökmu, kveikir hún þá ekki á lampa, sópar húsið og leitar vandlega uns hún finnur hana? Og er hún hefur fundið hana kallar hún saman vinkonur sínar og grannkonur og segir: Samgleðjist mér því að ég hef fundið drökmuna sem ég týndi. Þannig segi ég yður að englar Guðs munu gleðjast yfir einum syndara sem bætir ráð sitt.“

Lúkasarguðspjall 15. 1-10

Hundrað orða hugleiðing

Ég sit á bekknum. Ég  veit ekki hvort þú ert þar. En ég er þar. Ósættið við líðan mína er augljóst þegar litið er í spegil. Sjálfselskan skefjalaus og sálarlífið brotakennt. Í fjarska heyri ég einhver stertimenni hneykslast og fitja upp á trýnið. Sama er mér. Meistarinn stendur þarna með opinn faðminn. Tekur mig sauðinn, sér í fang. Ber mig í gegnum skýjaborgir mínar og heim. Fagnaðahróp. Englar Guðs fagna mér og brosandi fólk svífur að mér. Við sem týnumst, finnumst í öræfum mannlífsins eða í mjúkum sófum í öllum borgarhverfum. Og í gólfrykinu þegar konan Kristur sópar það vandlega.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir