Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Honum dauðbrá þegar meistarinn frá Nasaret fór að tala um útskúfun og upprisu. Þetta myndi ekki duga í baráttunni, væri alltof neikvætt og flókið. Trúaráhrifavaldar myndu líka finna höggstað á honum til að aflífa hann. Vissulega væri upprisan snjall krókur á móti bragði og flott stefnumál en þó of persónuleg framtíðarpæling. Hann hvíslaði nokkrum orðum að meistaranum og taldi sig öruggan í almannatengslahlutverkinu en var bara afskrifaður á svipstundu og hent út. Svo fannst honum hart að þurfa að afneita sjálfum sér því samkvæmt spám var markaðsverð hans eigin sálar á uppleið. Hve lengi hafði hann ekki þráð þá stund?