Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Þeir komu til Jeríkó. Og þegar Jesús fór út úr borginni ásamt lærisveinum sínum og miklum mannfjölda sat þar við veginn Bartímeus, sonur Tímeusar, blindur beiningamaður. Þegar hann heyrði að þar færi Jesús frá Nasaret tók hann að hrópa: „Sonur Davíðs, Jesús, miskunna þú mér!“ Margir höstuðu á hann að hann þegði en hann hrópaði því meir: „Sonur Davíðs, miskunna þú mér!“ Jesús nam staðar og sagði: „Kallið á hann.“ Þeir kalla á blinda manninn og segja við hann: „Vertu hughraustur, statt upp, hann kallar á þig.“ Blindi maðurinn kastaði frá sér yfirhöfn sinni, spratt á fætur og kom til Jesú. Jesús spurði hann: „Hvað vilt þú að ég geri fyrir þig?“ Blindi maðurinn svaraði honum: „Rabbúní, að ég fái aftur sjón.“ Jesús sagði við hann: „Far þú, trú þín hefur bjargað þér.“ Jafnskjótt fékk hann sjónina og fylgdi honum á ferðinni.

Markúsarguðspjall 10. 46-52 

Hundrað orða hugleiðing

Blindur við veginn og á einni svipan er heiminum lokið upp. Nú þarf að hefja nýtt líf og raða öllu saman sem áður hafði verið hlustað á, þreifað eftir eða þefað af. Samfélagslegt réttlæti birtist með öðrum hætti og hægt var að ganga fagnandi til móts við það, þiggja og gefa af sér. Opin, nýfædd augu gripu allt á lofti og það var trúin sem var myndlykill meistarans frá Nasaret. Fyrsti dagur sjónarinnar var hátíðisdagur og því var eðlilegt að fara í hús meistarans, kirkjuna. Þegar þangað kom þurfti að kveikja ljós og mörg kærleiksrík faðmlög lýstu daginn enn meira.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir