Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

„…. Innan skamms sjáið þér mig ekki lengur og aftur innan skamms munuð þér sjá mig.“
Þá sögðu nokkrir lærisveina hans sín á milli: „Hvað er hann að segja við okkur: Innan skamms sjáið þér mig ekki og aftur innan skamms munuð þér sjá mig, og: Ég fer til föðurins?“ Lærisveinarnir spurðu: „Hvað merkir þetta: Innan skamms? Við vitum ekki hvað hann er að fara.“
Jesús vissi að þeir vildu spyrja hann og sagði við þá: „Eruð þér að spyrjast á um það að ég sagði: Innan skamms sjáið þér mig ekki og aftur innan skamms munuð þér sjá mig? Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð gráta og kveina en heimurinn mun fagna. Þér munuð hryggjast en hryggð yðar mun snúast í fögnuð. Þegar konan fæðir er hún í nauð því stund hennar er komin. Þegar hún hefur alið barnið minnist hún ekki framar þrauta sinna af fögnuði yfir því að maður er í heiminn borinn. Eins eruð þér nú hryggir en ég mun sjá yður aftur og hjarta yðar mun fagna og enginn tekur fögnuð yðar frá yður. Á þeim degi munuð þér ekki spyrja mig neins. Sannlega, sannlega segi ég yður: Hvað sem þér biðjið föðurinn um í mínu nafni mun hann veita yður. Hingað til hafið þér einskis beðið í mínu nafni. Biðjið og þér munuð öðlast svo að fögnuður yðar verði fullkominn.“

Jóhannesarguðspjall 16. 16-23

Hundrað orða hugleiðing

Hann sagðist ekki láta kæfa sig með orðum þegar að trúnni kæmi. Þessi ræða meistarans frá Nasaret væri nokkuð ljós þó að innihaldinu væri vafið inn í óþarflega miklar umbúðir að áliti hans. Fagnaðarerindið væri í huga hans einfalt eins og ein með öllu á pylsubarnum og sinnepið mikið og sterkt. Þetta væri hans uppáhald enda hann maður hátíðlegs hversdagsleika. Meistarinn væri einfaldlega að hamra það inn að fögnuðurinn væri kjarni málsins. Ekki einhver bragðlítill fögnuður heldur rjúkandi heit pylsa eilífa lífsins og svo biði önnur tilbúin. Eitt líf með öllu og hurðinni skellt á dauðann! Það væri veislan mikla.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir