Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Hann sagðist alltaf svitna þegar dæmisagan af ríka manninum og Lasarus væri lesin. Hjarta hans sló með örlögum auðkýfingsins því sjálfur var hann slunginn fjármálamaður og naut gæða hins ljúfa lífs. Gladdist þó innilega yfir því að hinn þrautpíndi fátæklingur var umvafinn sælu engla og almættisins eftir harða vist á götum borgarinnar og í gistiskýlum. Fyrst eldveggurinn milli himnasælu og vítis var ókleifur fannst honum koma til greina að semja um stuðning við hina fátæku og var því þakklátur hinum ríka manni fyrir að hafa átt hlut í því að koma þeim stórskilaboðum til hans að hlusta á kærleiksráð spekinganna.