Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin.

Guðspjall

Konan segir við hann: „Drottinn, nú sé ég að þú ert spámaður. Feður okkar hafa tilbeðið Guð á þessu fjalli en þið segið að í Jerúsalem sé sá staður þar sem tilbiðja skuli.“

Jesús segir við hana: „Trú þú mér, kona. Sú stund kemur að þið munuð hvorki tilbiðja föðurinn á þessu fjalli né í Jerúsalem. Þið tilbiðjið það sem þið þekkið ekki. Við tilbiðjum það sem við þekkjum því hjálpræðið kemur frá Gyðingum. En sú stund kemur, já, hún er nú komin, er hinir sönnu tilbiðjendur munu tilbiðja föðurinn í anda og sannleika. Faðirinn leitar slíkra tilbiðjenda. Guð er andi og þeir sem tilbiðja hann eiga að tilbiðja í anda og sannleika.“ Konan segir við hann: „Ég veit að Messías kemur – það er Kristur. Þegar hann kemur mun hann kunngjöra okkur allt.“ Jesús segir við hana: „Ég er hann, ég sem við þig tala.“

Jóhannesarguðspjall 4.19-26

Hundrað orða hugleiðing

Þegar hugur þinn leitar frelsarans skiptir aðeins máli að hann sé umvafinn anda og sannleika. Þú heyrir græðandi rödd hans strax. Annað er ómur sögunnar og ilmur sem umvefur lesandann þegar meistarinn tekur hann varlega sér í fang. Guð leitar þín og margir sitja um þig. Og það er ekki bara Guð sem leitar þín. Þú leitar hans og veist það. Gestaþröngin er stundum þrúgandi innan veggja huga þíns og svo margar ákafaraddir sem bjóða holan anda sinn og fljótandi sannleika. En meistarinn bíður eftir þér hljóður og þú sem leitar heyrir mjúk orðin: „Ég er hann.“ Þar er bjargið.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir