Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra og klæði hans urðu fannhvít og skínandi og fær enginn bleikir á jörðu svo hvítt gert. Og Elía og Móse birtust þeim og voru þeir á tali við Jesú. Þá tekur Pétur til máls og segir við Jesú: „Meistari, gott er að við erum hér. Gerum þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.“ Hann vissi ekki hvað hann átti að segja enda urðu þeir mjög skelfdir.
Þá kom ský og skyggði yfir þá og rödd kom úr skýinu: „Þessi er minn elskaði sonur, hlýðið á hann!“ Og jafnskjótt litu lærisveinarnir í kringum sig og sáu engan framar hjá sér nema Jesú einan.
Á leiðinni ofan fjallið bannaði Jesús þeim að segja nokkrum frá því er þeir höfðu séð fyrr en Mannssonurinn væri risinn upp frá dauðum.

Markúsarguðspjall 9.2-9

Hundrað orða hugleiðing

Þegar einhver breytist fyrir framan þig þannig að fötin verða svo hvít að þú hefur aldrei séð annað eins spyrðu auðvitað hvað sé á seyði. Auk þess stíga fornir kappar fram á svið og skeggræða málin. Þú vilt auðvitað halda fast í þessa sýn enda fer undarlegur straumur um þig. Fætur þínir titra. Síðan berst rödd af himnum ofan og segir að meistarinn frá Nasaret sé ættskyldur Guði. Þú átt að hlusta á hann. Þessi sýn á að geymast í huga þínum þar til meistarinn hefur risið upp frá dauðum. Þess vegna segi ég frá því núna. Kristur er upprisinn.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir