Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Jesús svaraði: „Ef Guð væri faðir yðar munduð þér elska mig því að frá Guði er ég út genginn og kominn. Ekki hef ég sent mig sjálfur. Það er hann sem sendi mig. Hví skiljið þér ekki mál mitt? Af því að þér getið ekki hlustað á orð mitt. Þér eigið djöfulinn að föður og viljið gera það sem faðir yðar girnist. Hann var manndrápari frá upphafi og hefur aldrei þekkt sannleikann því í honum finnst enginn sannleikur. Þegar hann lýgur fer hann að eðli sínu því hann er lygari og lyginnar faðir. En af því að ég segi sannleikann trúið þér mér ekki. Hver yðar getur sannað á mig synd? Ef ég segi sannleikann, hví trúið þér mér ekki? Sá sem er af Guði heyrir Guðs orð. Þér heyrið ekki vegna þess að þér eruð ekki af Guði.“ Þeir svöruðu honum: „Er það ekki rétt sem við segjum að þú sért Samverji og hafir illan anda?“ Jesús ansaði: „Ekki hef ég illan anda. Ég heiðra föður minn en þér smánið mig. Ég leita ekki míns heiðurs. Sá er til sem leitar hans og dæmir. Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem varðveitir mitt orð skal aldrei að eilífu deyja.“

Jóhannesarguðspjall 8. 42-51

Hundrað orða hugleiðing

Henni fannst ekkert eðlilegra en að henda á lofti kærleikssendingu meistarans um að þau sem varðveittu orð hans skyldu aldrei að eilífu deyja. Sannarlega var hún smeyk í stofunni sinni heima umgirt vígaslóðum sem fréttamiðlar heimsins sýndu. Allt var komið í bál og brand. Illskan sjálf gekk augljóslega ljósum logum í alls konar dulargervum og manndrápsfýsnin skein úr glyrnum hennar. Var nokkuð eðlilegra en að hún bjartsýnissálin legði á minnið kröftug lykilorð meistarans frá Nasaret til þess að lifa að eilífu í návist hans? Í kvöldbænum sínum bað hún manndrápara heimsins aldrei þrífast og meistarann að vefja heiminn græðandi friðarörmum.

.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir