Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Það vefst fyrir mér þetta föður og sonartal í trúnni. Margir segja að þetta sé illa orðað fyrir nútímann þar sem faðirinn endurspegli almennt ekkert vald fremur en móðirin. Hvorki tal um mæðgin né mæðgur væri betra – auðvitað má hver nota sitt orðalag. Þess vegna hef ég bara notað mitt eigið orð yfir þetta flækjusamband og segi bara almættið. Meistarinn frá Nasaret er kominn úr póstnúmeri almættisins og ég læt þetta feðgatal í trúartextum og trúarjátningum ekki trufla mig. Hef ljóshraðasamband við almættið í bæninni og sem dauðleg vera legg ég allt í hendur þess sem birtist í smiðnum mikla.