Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

En María stóð úti fyrir gröfinni og grét. Grátandi laut hún inn í gröfina og sá tvo engla í hvítum klæðum sitja þar sem líkami Jesú hafði legið, annan til höfða og hinn til fóta. Þeir segja við hana: „Kona, hví grætur þú?“ Hún svaraði: „Þeir hafa tekið brott Drottin minn og ég veit ekki hvar þeir hafa lagt hann.“ Að svo mæltu snýr hún sér við og sér Jesú standa þar. En hún vissi ekki að það var Jesús. Jesús segir við hana: „Kona, hví grætur þú? Að hverjum leitar þú?“ Hún hélt að hann væri grasgarðsvörðurinn og sagði við hann: „Herra, ef þú hefur borið hann burt þá segðu mér hvar þú hefur lagt hann svo að ég geti sótt hann.“ Jesús segir við hana: „María!“ Hún snýr sér að honum og segir á hebresku: „Rabbúní!“ (Rabbúní þýðir meistari.) Jesús segir við hana: „Snertu mig ekki. Ég er ekki enn stiginn upp til föður míns. En farðu til bræðra minna og seg þeim: Ég stíg upp til föður míns og föður ykkar, til Guðs míns og Guðs ykkar.“ María Magdalena kemur og boðar lærisveinunum: „Ég hef séð Drottin.“ Og hún flutti þeim það sem hann hafði sagt henni.

Jóhannesarguðspjall 20. 11-18

Hundrað orða hugleiðing

Sennilega var hún ein af þessum sem hugsuðu um dauðann daglega. Ekki vegna þess að hún væri haldin einhverjum dauðakvíða. Henni fannst dauðinn einfaldlega fáránlegur. Hún fagnaði páskahátíðinni innilega vegna þess að þá þorði fólk að syngja um dauðann sem dó og lífið sem lifði. Meistarinn frá Nasaret heillaði hana því hann stóð lífsins megin og hún hafði fagnandi gengið til liðs við hann einmitt vegna upprisustefnunnar bæði hérna megin grafar og handan. Hún dró anda eilífðarinnar djúpt að sér og hlý rödd meistarans umvafði hana. Síðan settist hún niður og essemmessaði til lærisveinanna að hún hefði séð meistarann upprisinn.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir