Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Þessi er vitnisburður Jóhannesar þegar ráðamenn í Jerúsalem sendu til hans presta og Levíta til að spyrja hann: „Hver ert þú?“
Hann svaraði ótvírætt og játaði: „Ekki er ég Kristur.“
Þeir spurðu hann: „Hvað þá? Ertu Elía?“
Hann svarar: „Ekki er ég hann.“
„Ertu spámaðurinn?“
Hann kvað nei við.
Þá sögðu þeir við hann: „Hver ert þú? Við verðum að svara þeim er sendu okkur. Hvað segir þú um sjálfan þig?“
Hann sagði: „Ég er sá sem Jesaja spámaður talar um. Ég er rödd hrópanda í eyðimörk er segir: Gerið beinan veg Drottins.“
Sendir voru menn af flokki farísea. Þeir spurðu hann: „Hvers vegna skírir þú, fyrst þú ert hvorki Kristur, Elía né spámaðurinn?“
Jóhannes svaraði: „Ég skíri með vatni. Mitt á meðal ykkar stendur sá sem þið þekkið ekki, hann sem kemur eftir mig og skóþveng hans er ég ekki verður að leysa.“
Þetta bar við í Betaníu, handan Jórdanar, þar sem Jóhannes var að skíra.

Jóhannesarguðspjall 1.19-28

Hundrað orða hugleiðing

Hann stóð óhræddur frammi fyrir valdinu þegar það vildi vita hver hann væri. Þeir reyttu hár sitt og sögðust þurfa að svara þeim er gerðu þá út af örkinni til að komast að því. Þessi Jóhannes skírari. Örvæntingarfullir spurðu þeir hvað hann segði um sjálfan sig. Hann svaraði þeim hiklaust og sagðist vera rödd hrópanda í strætiseyðimörkum okkar. Gerið beinan veg Drottins. Og enn aðrir komu til hans og báðu um skírn. Hann sagðist skíra bara með vatni. Bætti því reyndar við að annar kröftugri stæði mitt á meðal okkar en við þekktum hann ekki. Hver var það? Þessi þarna?

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir