Ástjarnarkirkja er í Tjarnaprestakalli í Kjalarnessprófastsdæmi.

Safnaðarheimilið þar sem starf kirkjunnar fer fram var vígt 8. október 2017 af séra Agnesi M. Sigurðardóttur, biskupi.

Teiknistofan Arkís hannaði safnaðarheimilið og voru það arkitektarnir Björn Guðbrandsson, Hulda Sigmarsdóttir, Aðalsteinn Snorrason og Egill Guðmundsson (1952-2019) sem unnu það verk.  Teiknistofan Óðinstorgi sá um verkfræðilega hönnun. Talað er um safnaðaheimilið sem Ástjarnarkirkju enda það hluti af henni þó að kirkjan sjálf sé ekki risin en hún bíður síns tíma. Þegar arkitektasamkeppnin fór fram um safnaðarheimilið var ekki óskað eftir teikningu af kirkjunni. Hins vegar var tekinn frá reitur fyrir kirkju sem rís við norðausturenda safnaðarheimilisins

Prédikunarstól, skírnarfont, altari og gráður, smíðaði Tómas Bergþór Þorbjörnsson.

Kirkjugripir eru úr áli og eik: kross á altari, altariskertastjakar, patína og oblátuskrín. Hannaðir af Sigurþóri Aðalsteinssyni (1944-2025), arkitekt. Gripirnir voru unnir af Trésmiðju Gylfa, Vélsmiðju Ólafs & Vélsmiðju Konráðs Jónssonar.

Kirkjan á Kawi GX6 flygil.

Merki Ástjarnarkirkju gerði Pétur Baldvinsson, grafískur hönnuður.

Kirkjan er búin ágætum messuklæðum.

Heimasíða Ástjarnarkirkju. 

Horft inn að altari 

Horft frá altari

Altari, skírnarfontur og prédikunarstóll – innan við altarið er glerveggur og bak við hann er kross og lítill garður

Fallegt er að líta úr kirkjusalnum og út í hraunið

Merki Ástjarnarkirkju (skjáskot)

Ástjarnarkirkja sómir sér vel á Völlunum í Hafnarfirði

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir