Kálfatjarnarkirkja er í Tjarnaprestakalli í Kjalarnessprófastsdæmi.

Kirkjunnar er getið í kirknaskrá Páls biskups Jónssonar (1155–1211) frá því um 1200.

Kálfatjarnarkirkja var vígð 11. júní 1893 af Hallgrími Sveinssyni (1841-1909) biskupi. Við vígsluna var viðstatt á sjötta hundrað manns.

Guðmundur Jakobsson (1860–1933), timburmeistari frá Sauðafelli í Dölum, var ráðinn til að segja til um gerð hennar og útlit ásamt því að stjórna smíðinni. Kirkjunni var mikið gert til góða fyrir aldarafmæli hennar 1993.

Altaristafla kirkjunnar er eftir Sigurð Guðmundsson (1833–1874) málara og kom í kirkjuna 1866. Hún er eftirmynd af töflu Dómkirkjunnar í Reykjavík sem danski listmálarinn G. T. Wegener (1817–1877) gerði.

Kirkjan er vel búin messuklæðum og á meðal annars rauðan hökul eftir vefnaðarlistakonuna Elínu Stefánsdóttur (f. 1943) og grænan eftir Guðrúnu J. Vigfúsdóttur (1921-2015), vefnaðarlistakonu.

Kálfatjarnarkirkja búin góðum helgigripum.

Skírnarfontur er frá 1951, skorinn úr hnotu af Ágústi Sigurmundssyni (1904–1965), útskurðarmeistara.

Söngtafla kirkjunnar er frá 1893.

Kirkjan á rússneska helgimynd sem gerð var eftir ströngustu hefð rússneskrar íkonagerðar og er eftir D. S. Shkalentich (f. 1950).

Orgel kirkjunnar er frá 1985, níu radda, þýsk smíð frá verkstæðinu Reinhard Tzschöcel í Suður-Þýskalandi.

Klukkur kirkjunnar eru tvær, sú stærri er frá 1785 en hin er yngri.

Horft inn kirkju frá forkirkju

Prédikunarstóll – smíðaður af Einari Jónssyni (1818–1891) snikkara frá Brúarhrauni og skrautmálaður af danska málaranum Berthelsen 1893

Söngtafla frá 1893 – önnur af tveimur

Skírnarsár úr hnotu

Málverk eftir Nikolaj S. Berthelsen (1855–1915) á austurgafli undir hvelfingu en hann málaði alla kirkjuna á sínum tíma að innan og það verk stendur enn

Gabríel erkiengill – rússnesk helgimynd

Á sönglofti

Orgel kirkjunnar er þýskt frá 1985 – bak við orgelið er málverk eftir Nikolaj S. Berthelsen en orgelið hylur það nær allt

Guðbrandsbiblía og rafmagnsljósalampi í líki guðsmóður

Horft frá altari og út kirkju

Í forkirkju

Söfnunarbaukur í forkirkju

Kálfatjarnarkirkja er einstaklega fallegt tvígólfa kirkjuhús – aðstöðuhús safnaðarins norðan megin

Allar myndir: Kirkjublaðið.is

Heimild: Kirkjur Íslands, 11. bindi, 2008

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir