Síðustu þingstörf þessa kirkjuþings stóðu frá laugardegi til sunnudags í Grand Hotel í Reykjavík.

Fjölmörg mál voru afgreidd og hlutu sum þeirra meiri umræðu en önnur.

Athyglisverð breyting var gerð á störfum vígslubiskupa en nú munu þeir sinna prestsstörfum jafnframt vígslubiskupsstörfum í umdæmum sínum. Vígslubiskup á Hólum mun sem sé gegna prestsstörfum í Skagafjarðarprestakalli og vígslubiskup í Skálholti prestsstörfum í Skálholtsprestakalli. Þessi breyting tekur gildi næst þegar kosið verður og mun biskup Íslands setja vígslubiskupum erindisbréf – sjá 34. mál.

Kirkjuþing tók ákvörðun um að leggja niður úrskurðarnefnd frá og með 1. apríl 2026. Sjá mál nr. 32.

Á þinginu var lögð fram skýrsla sem fjallar um endurskoðun á þjónustu kirkjunnar þar sem lagt er mat á stöðu vígðrar þjónustu og tillögur til úrbóta reifaðar. Þessa skýrslu vann Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins ehf. Skýrslan er um margt fróðleg og getur orðið góður umræðugrunnur meðal kirkjufólks.

Lögð var fram lokaskýrsla starfshóps um skráningu sóknarbarna og hana má kynna sér hér.

Þá var samþykkt eftirfarandi tillaga:

Kirkjuþing íslensku þjóðkirkjunnar lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu mála að Hólum í Hjaltadal. Starfsemi ríkisins á staðnum hefur dregist mjög saman, viðhald bygginga verið vanrækt og umhirðu ábótavant. Mikilvægt er að ríkisvaldið marki Hólastað skýra stefnu til framtíðar og staðnum sýndur sá sómi sem honum ber.

Í vor verður kosið til nýs kirkjuþings.

Nokkrir kirkjuþingsfulltrúar sem hafa átt sæti á kirkjuþingi í mislangan tíma hyggjast ekki sækja eftir endurkjöri. Forseti kirkjuþings, Drífa Hjartardóttir, gefur ekki kost á sér áfram til setu á kirkjuþingi. Hún hefur gegnt forsetastörfum frá 2018 og var fyrst kvenna til að gegna því embætti. Voru henni færðar sérstakar þakkir á kirkjuþingi fyrir framúrskarandi vel unnin störf.

Hér er hlekkur á þingmálaskrá þar sem hægt er að kynna sér hvað kom til kasta 67. kirkjuþings.

Nokkrar svipmyndir af kirkjuþingi

Frá fundi kirkjuþings í gær

Hlýtt á umræður með athygli

Sumir tóku þátt í þingstörfum heima hjá sér

Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, forseti kirkjuþings, Drífa Hjartardóttir og Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri kirkjuþings

Steindór R. Haraldsson, kirkjuþingsmaður úr Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi, hefur lengi setið á kirkjuþingi og látið mjög til sín taka en gefur ekki kost á sér áfram

Viltu deila þessari grein með fleirum?