Kirkjuþingsfundur var haldinn 4. febrúar síðastliðinn og var hann haldinn í Seltjarnarneskirkju. Kirkjublaðið.is kynnti fyrirliggjandi mál fundarins og um það má lesa hér.

Þau mál sem lögð voru fyrir kirkjuþingsfundinn voru öll felld.

Þessi voru málin sem fengu ekki framgang eins og það heitir á hátíðlegu máli:

Mál nr. 4, almennur kosningarréttur allra þjóðkirkjumanna 16 ára og eldri, með skráningu á kjörskrá, vígðir sem látið hafa af störfum tímabundið eða vegna aldurs fái kosningarrétt í kjördeildum vígðra.

Mál nr. 27, fjölgun fulltrúa á kirkjuþingi í 31, þar af tveir fulltrúar unga fólksins (18 – 35 ára) kosnir af kirkjuþingi unga fólksins.

Mál nr. 29, hámarkstími þingsetu þrjú kjörtímabil.

Mál nr. 35, almennur kosningarréttur allra þjóðkirkjumanna 16 ára og eldri, sameiginlegar kjördeildir leikra og vígðra, prófastsdæmi séu kjördæmi, 9 vígðir í stað 12 og 20 leikmenn í stað 17. Löggjafarnefnd hefur dregið til baka álit sitt á þskj. 35b. Í stað þess leggur nefndin nú fram tvö nefndarálit á þskj. 35 d og e. Á þskj. 35d er einnig breytingartillaga við upphaflegu tillöguna á þskj. 35a og einnig er breytingartillaga þingfulltrúa á þskj. 35c.

Afgreiðslu á tillögu til þingsályktunar um sölu tveggja fasteigna, íbúðarhúsa á Þórshöfn og á Skeggjastöðum, var frestað til kirkjuþingsfundar sem haldinn verður í marsmánuði.

Hér má hlýða á umræður sem fram fóru og eru þær reyndar frá seinni hluta fundarins. Fyrri hluti umræðunnar verður birtur síðar en samkvæmt upplýsingum Viðburðarstofu Vestfjarða sem sá um upptöku af fundinum skutu tæknilegir örðugleikar upp kolli svo ekki er hægt eins og er að hlýða á seinni hluta umræðunnar. Kirkjublaðið.is mun fleyta fyrri hluta umræðunnar áfram um leið og búið verður að kippa því í liðinn.

Á kirkjuþingsfundinum var og vakin athygli á heimasíðu kirkjuþings: Kirkjuþing þjóðkirkjunnar

Kirkjuþingsfulltrúar fylgjast grannt með umræðum

Safnaðarsalur Seltjarnarneskirkju er prýðilegur fundarstaður

Guðmundur Þór Guðmundsson, lögfræðingur kirkjuþings, kynnti nýja heimasíðu þingsins: Kirkjuþing þjóðkirkjunnar

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir