Ragnheiður Sverrisdóttir (f. 1954) var vígð til djákna 1981 og starfaði bæði í sænsku og íslensku kirkjunni. Hún sinnir núna sjálfboðastarfi og stundar nám í ritlist..

Hún er gömul
passar að slökkt
sé á eldavélinni

Hún er gömul
lokar gluggum ef hún
fer út

Hún er gömul
þurrkar vel af
svo enginn haldi að hún
sjái illa

Hún er gömul
skrifar á miða:
„Mundu eftir heyrnartækjunum“

Hún er gömul
fjarlægir motturnar

Hún er gömul
notar stól í sturtunni

Hún er gömul
gengur ekki snúna stiga

Hún er gömul
notar mannbrodda

Hún er gömul
styðst við staf

Hún er gömul
hætt að kaupa föt

Hún er gömul
viðrar líkklæðin

Hún er gömul
vinkonurnar farnar

Hún er gömul
engin að hitta

Hún er gömul
engin að hringja í

Hún er gömul
með verki alls staðar

Hún er gömul
man ekki hvar hún setti gleraugun

Hún er gömul
það tekur heilan dag
að skipta á rúminu

Hún er gömul
hætt að elda

Hún er gömul
gerir erfðaskrá

Hún er gömul
skipuleggur útförina

Hún er gömul
gæti þó lifað mörg ár enn

Hún er gömul
verður fráflæðisvandi

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Ragnheiður Sverrisdóttir (f. 1954) var vígð til djákna 1981 og starfaði bæði í sænsku og íslensku kirkjunni. Hún sinnir núna sjálfboðastarfi og stundar nám í ritlist..

Hún er gömul
passar að slökkt
sé á eldavélinni

Hún er gömul
lokar gluggum ef hún
fer út

Hún er gömul
þurrkar vel af
svo enginn haldi að hún
sjái illa

Hún er gömul
skrifar á miða:
„Mundu eftir heyrnartækjunum“

Hún er gömul
fjarlægir motturnar

Hún er gömul
notar stól í sturtunni

Hún er gömul
gengur ekki snúna stiga

Hún er gömul
notar mannbrodda

Hún er gömul
styðst við staf

Hún er gömul
hætt að kaupa föt

Hún er gömul
viðrar líkklæðin

Hún er gömul
vinkonurnar farnar

Hún er gömul
engin að hitta

Hún er gömul
engin að hringja í

Hún er gömul
með verki alls staðar

Hún er gömul
man ekki hvar hún setti gleraugun

Hún er gömul
það tekur heilan dag
að skipta á rúminu

Hún er gömul
hætt að elda

Hún er gömul
gerir erfðaskrá

Hún er gömul
skipuleggur útförina

Hún er gömul
gæti þó lifað mörg ár enn

Hún er gömul
verður fráflæðisvandi

Viltu deila þessari grein með fleirum?