Kirkjublaðið.is fagnar fimm ára afmæli sínu í dag en það var stofnað 11. október 2020. Um er að ræða einstaklingsframtak ritstjórans og hugmyndin var sú að auka umræðu um kirkjuleg málefni og annað sem þeim tengdist. Kirkjublaðið.is er frjáls miðill og kostaður af ritstjóranum, óháður öllum trúfélögum en stendur á lúthersk-evangelískum grunni.
Nú horfir svo að Kirkjublaðið.is er nánast eini fjölmiðlavettvangurinn þar sem umræða um málefni kirkjunnar fer fram. Þess vegna er Kirkjublaðið.is mikilvægur miðill og vettvangur skoðanaskipta um kirkjumál. Fjöldi greina sem birst hafa undanfarið í miðlinum um kirkjuna og lýðræðið sýna glöggt að þörf er á Kirkjublaðinu.is.
Umræða um kirkjuleg málefni er nauðsynleg og hún verður að fara fram. Öll skoðanaskipti eru af hinu góða og ekki síður heilbrigt aðhald gagnvart öllum þeim er starfa á kirkjulegum vettvangi. Kirkjublaðið.is hvetur allt kirkjufólk til að láta í sér heyra og nýta þennan vettvang sem miðillinn er. Það þarf ekki í sjálfu sér að skrifa langar greinar til að koma skoðunum sínum á framfæri – þó svo lengri greinum sé og fagnað. Kirkjufólk hefur svo sannarlega skoðanir á öllu því er snýr að kirkjunni og þær þurfa að heyrast sem víðast.
Kirkjufólk sem ann kirkjunni og starfar fyrir hana býr að fjölbreytilegri lífsreynslu og er allt menntað með sínum hætti og hefur sitthvað uppbyggilegt og forvitnilegt til málanna að leggja.
Kirkjublaðinu.is er dreift á Feisbókarsíðu ritstjórans og iðulega á Feisbókarsíður Djákna, presta og guðfræðinga, og síðu Prestafélags Íslands. Margir lesendur Kirkjublaðsins.is dreifa greinum úr blaðinu á sínar síður. Þannig hafa lesendur á vissan hátt lykilstöðu til að koma efni blaðsins áfram hafi þeir áhuga á því. Kirkjublaðið.is er svo sannarlega þakklátt þeim sem dreifa blaðinu og greinum þess í netheimum. Þá skal minnt á að þótt margir setji ekki læk-merki á dreifingu greina þá eru lesendur ætíð fleiri en lækin. Hins vegar hvetja fleiri læk á efni til enn meiri lesturs.
Kirkjublaðið.is fagnar fimm ára afmæli sínu með kærum þökkum til þeirra sem styðja við bakið á því og fara góðum orðum um það. Sömuleiðis og ekki síst færir Kirkjublaðið.is þakkir öllum þeim sem lagt hafa efni til blaðsins. Allt hefur það verið vandað og athyglisvert.