Sunnudaginn 1. mars verður Jóhannesarpassía Jóhanns Sebastíans Bachs flutt í Eldborgarsalnum í Hörpu. Þetta er menningarviðburður sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Segja má að þetta sé lokahnykkur afmælisárs Sumartónleikanna í Skálholti 2025-2026 þó að góan sé nýgengin í garð. Efni Jóhannesarpassíunnar á hins vegar samleið með föstutímanum sem nú stendur yfir en flutningsdagur passíunnar er einmitt 2. sunnudagur í föstu.
Það er ekki að ástæðulausu sem Jóhannes Sebastían Bach (1685 – 1750) er kallaður fimmti guðspjallamaðurinn því með snilldarbrag tókst honum að færa píslarsöguna í magnað tónverk þar sem Passían er. Verkið hefur allt frá því að það var frumflutt í Leipzig á föstudaginn langa 1724 verið nánast sem áeggjan til tónlistarfólks á öllum tímum að flytja það. Ekki bara einsöngvara, heldur líka kórfólk, stjórnendur og hljómlistafólk. En Passían hefur ekki aðeins heillað tónlistarfólkið heldur ekki síður almenning sem sækist í að njóta fegurðar listaverksins og finna hvernig það byggir upp mannssálina. Það er sögumaður píslarsögunnar sem rekur frásögnina í söng sínum en persónur þessa mikla drama eru einsöngvarar og kór.
Tenórsöngvarinn Benedikt Kristjánsson, listrænn stjórnandi Sumartónleika í Skálholti, er sá sem heldur um alla þræði við flutning Passíunnar en hann er gerkunnugur verkinu. Benedikt mun syngja hlutverk sögumannsins eða guðspjallamannsins og það ekki í fyrsta sinn en það er hins vegar frumraun hans að stjórna verkinu í heild sinni í Eldborg. Til verka er kallað saman einvalalið tónlistarfólks. Tobias Berndt barítón syngur hlutverk Jesú og Hrólfur Sæmundsson barítón mun syngja hlutverk Pílatusar. Auk þess koma að flutningnum söngkonurnar Arnheiður Eiríksdóttir messósópran og María Konráðsdóttir sópran. Kórinn er ekki af verri endanum, sjálfur Schola Cantorum auk Barokksbandsins Brákar og Finnsku barokksveitarinnar.
Benedikt Kristjánsson er listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri Sumartónleika í Skálholti. Hann stjórnaði flutningi Jólaóratoríunnar og söng hlutverk guðspjallamannsins í uppfærslu Listvinafélagsins í Reykjavík í desember 2024. Benedikt hefur tekið þátt í flutningi Jóhannesarpassíunnar í helstu tónleikasölum Evrópu, Kanada og í Bandaríkjunum. Hann útbjó einnig sérstaka útgáfu passíunnar fyrir tenór, sembal/orgel og slagverk sem m.a. var flutt í Tómasarkirkjunni í Leipzig á föstudaginn langa, árið 2020 í miðjum heimsfaraldri og var flutningnum streymt af stærstu sjónvarpsstöðvum Þýskalands. Benedikt fékk þýsku tónlistarverðlaunin Opus Klassik fyrir nýstárlegastu tónleika ársins fyrir flutning verksins.
Allir sem láta sig varða menningu, tónlist og kirkjulíf ættu að nýta þetta einstæða tækifæri til að sjá og heyra flutning á Jóhannesarpassíunni í Eldborg 1. mars næstkomandi sem enginn verður svikinn af. Hér er á ferð tónlistarfólk í hæsta gæðaflokki.
Hér er brot frá æfingu á verkinu.
Miða er hægt að kaupa á tix.is