Við vitum að myrkrið á misgreiða leið að okkur mönnunum. Sumir eru viðkvæmari fyrir því en aðrir. Þau eru til sem hrjúft myrkrið virðist ekki snerta hætis hót. Svo eru þau sem virðast ætíð glöð í bragði og hress en inni býr eitthvert djúpt myrkur sem við aldrei sjáum – það er hættulegasta myrkrið.

Þannig er manneskjan.

Skuggar og ljós.

Hvernig getum við hjálpað?

Kveikt ljós eða gengið að ljósi því sem aðrir bregða upp til að verma lífið og styðja þó kannski í litlu sé.

Nú er sá tími sem er engum öðrum líkur. Þegar myrkur náttúrunnar er sem þyngst kvikna ljósin eitt af öðru. Það er eins og hvert nýtt ljós sem er tendrað segi: Farðu burt, myrkur! Ég vil ekki sjá kulda þinn og vonleysi.

Þungur hugur getur notið þeirra birtu sem vex smám saman á þessum dögum fram til jóla. Þetta er aðventan. Ljós sem verður sterkara og sterkara eftir því sem fleiri dagar fjúka af dagatalinu í desember.

Aðventa er tími undirbúnings fyrir hátíð ljóssins. Sá tími þegar ljósið lætur okkur svo að segja ekki í friði. Ljós við ljós – flöktandi kertaljós sem minnir okkur á viðkvæmt lífið og kraftinn sem það felur í sér. Heitur loginn vermir og dregur okkur að sér.

Þegar ljós aðventunnar eru kveikt þá er sem manneskjan ætli sér að lýsa upp allan heiminn í eitt skipti fyrir öll og hún telur sig jafnvel fullfæra um það. Reka út depurðina sem grefur um sig í sálum þeirra sem myrkrið kremur.

En þó ljósaflóð aðventunnar sé harla mikil af mannavöldum þá verður það aldrei sterkara en ljós þess sem sagði einfaldlega:

Ég er ljós heimsins.

Ljós heimsins getur brotið sér leið inn í dapran huga.

Þetta ljós heimsins reynum við manneskjurnar að endurspegla í ljósadýrð aðventunnar. En það er til lítils að kveikja hvert ljósið á fætur öðru með alls konar tilþrifum og blæbrigðum ef menn gleyma því að öll ljósin eru ekki nema daufur geisli af ljósi heimsins. Þetta ljós heimsins vísar okkur afdráttarlausa leið náungakærleika og umhyggju.

Hvert og eitt okkar hefur burði til að bregða geislum þessa ljóss inn í líf annarra sem sitja í hugarmyrkri og vanlíðan. Aðventan kallar okkur til að ganga í þetta verk á þeim stað þar sem við erum stödd hverju sinni.

Þegar við göngum með þetta aðventuljós til annarra manna vitum við að það ljós getur aldrei orðið of mikið.

Öll þurfum við nefnilega á ljósi heimsins að halda.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir