Þessi mynd sækir innblástur sinn í hefðbundin endurreisnarverk af Maríu guðsmóður.[1] Nafn verksins, Hljóða nótt, vísar til hinnar kyrru nætur þegar barnið fæddist. Hins vegar er nóttin alls ekki hljóð þar sem María er að hlýða á eitthvað úr podkastinu. Eyru hennar eru lokuð fyrir barninu sem er reyndar sjálft íhugult á svip og föndrar við tækið með fingrum sínum. Kannski vill hann fá svona tæki í jólagjöf? Tæknin hefur hafið innreið sína og neyslan er hafin og hún breytir ýmsu. Tæki sem þetta á myndinni boðar vissa einangrun og fjarlægð einstaklingsins frá öðrum enda þótt viðkomandi sé nærstaddur í líkamanum. Kannski boðar neysluhyggjan stafrænan Krist?
Þetta verk Banksy er í flokki þeirra sem hann kallaði Crude Oil eða hina Grófu olíu og vísaði til olíu sem hráefnis (getur líka þýtt illa unnið verk.) Í mörgum þessara verka sem eiga rót sína myndum frá fyrri öldum má sjá hluti úr nútímanum eins og gasgrímur, vopn, bílhræ og raftæki.[2] Heiti myndraðarinnar kallar fram ýmsar tilvísanir til olíuiðnaðar og þeirrar mengunar sem hann veldur. Þetta á einnig við um þessi tilteknu verk. Þau eru olíumálverk, óhrein og afmyndum í ákveðnum groddaskap til að vekja umræðu og eru andstæð hinni göfugu og hreinu eða göfugu list (e. fine art).
Hljóða nótt sýnir guðsmóðurina með Jesúbarnið, tákn hátíðahalds kristinna manna er þeir fagna fæðingu guðssonarins. Kristin hefð kallar eftir lotningu og auðmýkt gagnvart þessum trúarlega viðburði. Mynd Banksy setur gagnrýni á kapítalismann inn í fæðingarumgjörðina með því að María hlýðir á snjalltæki og Jesúbarnið virðist vera hugsi. Hér hlustar hún ekki á barnið heldur er upptekin við annað. Samfélagsleg og siðferðileg ábyrgð kristinna snýr einnig að börnum, að hlusta og tala við þau og skiptir þá aldur ekki máli. Verkið dregur augljóslega fram samband kapítalisma og kristinnar trúar.
Hér er eitt meginstef kristinnar trúar tekið upp sem auglýsingaskilti fyrir ákveðin tæki í auglýsingasamfélagi nútímans. Í almennri umræðu í nútímanum ber iðulega á góma að hvers kyns tæki og tól eins og snjallsímar einangri fólk frá hvert öðru, börn[3] og foreldra, og kappsmálið sé að hafa ætíð nýjustu útgáfu hvers tækis í höndunum, sem sé að dansa í kringum neysluna eða gullkálfinn fræga.[4] Gömlu tækjunum er hent – og hvað með rafhlöðurnar í umhverfinu? Framleiðsla þessara tækja krefst ýmissa efna sem hafa afar skaðleg áhrif á umhverfi og loftslagið. Kristin ábyrgð og siðferði geta svo sannarlega samsinnt þessari gagnrýni sem Bansky kemur á framfæri í verkinu Hljóða nótt.
Tilvísanir
[1] Verkið var sýnt í Bristol árið 2005, sjá: https://londonist.com/2005/10/review_-_crude Sótt 3. janúar 2025, og árið 2009, sjá: Ulrich Blanché, Banksy: Urban Art in a material World (Tectum Wissenschaftsverlag, 2016), 140.
[2] Ulrich Blanché, Banksy: Urban Art in a material World (Tectum Wissenschaftsverlag, 2016), 114.
[3] Menntamálaráðherra lagði fram nú á dögunum stjórnarfrumvarp á Alþingi um snjallsímanotkun barna í grunnskólum og meðal annars með það í huga að styðja „farsælt nám þeirra og vellíðan.“ https://www.althingi.is/altext/157/s/0295.html 295/157 – Sótt 3. janúar 2025.
[4] „Þá sleit allt fólkið gullhringana úr eyrum sér og færði Aroni. Hann tók við þeim úr höndum þeirra, bræddi og steypti úr þeim kálf. … sá kálfinn og hringdansinn…“ Sjá: II. Mósebók 32.3,19. Biblían 2007.