Flateyrarkirkja er í Ísafjarðarprestakalli, Vestfjarðaprófastsdæmi.

Kirkjan var vígð af dr. Jóni Helgasyni (1866–1942), biskupi Íslands, 26. júlí 1936.

Teikning kirkjunnar er undirrituð af Einari Erlendssyni (1883–1968), húsameistara hjá embætti húsameistara ríkisins. Jón Jónsson (1896–1969), verktaki á Flateyri, byggði kirkjuna. Það var Guðrún Snæbjörnsdóttir (1891–1969) sem var aðalhvatamaður að byggingu kirkjunnar.

Kirkjan tekur 120 manns í sæti.

Í kirkjuskipi eru átta steindir gluggar eftir Leif Breiðfjörð, glerlistamann. Þeir voru gefnir til minningar um látna ástvini og komu í kirkjuna á árabilinu 1973-1983.

Altaristafla kirkjunnar er eftirmynd sem Brynjólfur Þórðarson (1896–1938), listmálari, málaði eftir mynd danska listmálarans Carl H. Bloch (1834–1890). Myndin heitir Cristus Consolator, (Kristur huggar), og er frummynd hennar að finna í Hörupskirkju í Hörup í Svíþjóð.

Altarisdúkar eru tveir. Guðrún Snæbjörnsdóttir (1891–1969) vann annan þeirra og er hann með Feneyjasaumi (venesíenskum saumi) , frá 1936. Hinn er með harðangurssaumi og unninn af Sólveigu Gísladóttur (?).

Jón (1903–1980) og Gréta Björnsson (1908–1985) gerðu skreytingar innan kirkjunnar 1976.

Skírnarfontur er útskorinn 1976 af Friðriki Friðleifssyni (1922–1989), myndskera .

Kirkjan er búin sjö radda pípuorgeli frá orgelverksmiðjunni Alfred Kern et fils í Strassborg og kom í kirkjuna 1984.

Hringlaga steindur gluggi er í turni en hann var unnin af enskum glerlistamanni.

Í Flateyrarkirkju eru tvær kirkjuklukkur, steyptar hjá Vélsmiðjunni Hamri í Reykjavík, 1936.

Kvenfélagið Brynja gaf ljósakrónur og veggljós á vígsluári kirkjunnar.

Horft inn kirkju frá forkirkju

Horft frá altari og fram kirkju

Prédikunarstóll kirkjunnar

Altaristafla kirkjunnar og og altarisbrúnin fagurlega saumuð

Yfir kórboga er mynd af seglskipi

Steindur gluggi eftir Leif Breiðfjörð

Steindur gluggi eftir Leif Breiðfjörð

Skírnarfontur frá 1976

Sjö radda pípuorgel er í kirkjunni

Ljósakróna – gjöf frá kvenfélaginu Brynju

Flateyrarkirkja – skreytingar Jón og Gréta Björnsson

Flateyrarkirkja stendur miðsvæðis í þorpinu – við kirkjuna er minningarsteinn um þau sem fórust í snjóflóðinu 1995

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir