Í júnímánuði 1940 var kapella Háskóla Íslands vígð eða nánar til tekið þann 16. en sjálf háskólabyggingin á þjóðhátíðardeginum 17. júní.

Kapella Háskóla Íslands er því 85 ára um þessar mundir og sjálfsagt að minnast þess og skoða nokkrar gamlar myndir frá vígsluathöfninni.

Biskup Íslands, séra Sigurgeir Sigurðsson (1890-1953), vígði kapelluna og sagði meðal annars í vígsluprédikun sinni að ef „kapella hefði gleymst, hefði byggingin orðið fátæklegri“, sem eru orð að sönnu því að kapellan er afar falleg í látleysi sínu. Hún gengur í gegnum tvær hæðir í aðalbyggingu háskólans og tekur um 140 manns í sæti. Kapellan var upprunalega máluð í ljóshvítum lit og ljósbláum og var færð aftur til þeirra lita fyrir nokkrum árum.

Séra Ásmundur Guðmundsson (1888-1969), prófessor, prédikaði og sagði að kapellan ætti að verða hjarta Háskóla Íslands. Dómkórinn söng við vígsluna og við orgelið var Páll Ísólfsson (1839-1974).

Ósk um að kapella yrði í hinu nýja háskólahúsnæði kom snemma fram og var vel tekið í hana. Húsameistari ríkisins, Guðjón Samúelsson (1887-1950), lagðist yfir verkið með guðfræðikennurum deildarinnar. Kapellan átti að vera kennslustofa og staður þar sem prestsefni gátu æft sig fyrir altari.

Á vegg skrúðhúss og framhlið prédikunarstóls eru myndir af táknum guðspjallamannanna fjögurra, lagðar gulli og höfundur þeirra er Ásmundur Sveinsson (1893-1982), myndhöggvari. Eins gerði hann lágmyndirnar yfir dyrum kapellunnar og um þær fjallaði dr. Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor emeritur, hér í Kirkjublaðinu.is.

Stór gluggi með lituðu gleri er í kapellunni og lýsti séra Magnús Jónsson (1887-1958), prófessor, honum svo:

Kapellan er opin alla daga þegar aðalbygging Háskólans er opin og hún er að sjálfsögðu sem hvert annað vígt húsnæði sem allir geta leitað í. Þess má geta að fyrr á árum var nokkuð vinsælt að háskólastúdentar gengju í hjónaband í kapellunni.

Hér koma myndir frá vígslunni og rakst Kirkjublaðið.is á þær í Þjóðskjalasafni Íslands, ÞÍ B/278. Ljósmyndari var líklega Sigurhans Vignir (1894-1975) en upplýsingar sem staðreyna það væru vel þegnar.

Frá vinstri fyrir altari, Sigurgeir Sigurðsson, biskup, Magnús Jónsson, guðfræðiprófessor og sitjandi prófessor Ásmundur Guðmundsson

Fyrir altari: Biskupinn, þá Magnús, prófessor og Ásmundur sitjandi

Magnús Jónsson guðfræðiprófessor fór yfir aðdraganda byggingarinnar og lýsti kapellunni

Prófessor Ásmundur Guðmundsson prédikaði – glerglugginn litaði  sem dr. Magnús útskýrði

Litmynd af litaða glugganum – mynd: Kirkjublaðið.is

Húsnæði háskólans var sýnt almenningi og dreif að mikinn mannfjölda 

Háskólakapellan – mynd: Kirkjublaðið.is

Viltu deila þessari grein með fleirum?