Árbæjarprestakall í Reykjavík varð til 1971. Það tilheyrir Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.

Fyrst var byrjað á safnaðarheimili kirkjunnar sem nú er jarðhæð hennar. Það var vígt 1978

Síðan var hafist handa við að reisa kirkjuna og stóð sú vinna yfir frá 1982-1987. Klukknaport og kirkjuklukkur voru vígðar við jólamessu 1980. Klukkurnar eru  ungverskar; klukknaportið er ekki áfast sjálfri kirkjunni.

Hljóm klukknanna má heyra á Kirkjuklukkur Íslands.

Árbæjarkirkja var svo vígð 29. mars 1987.

Arkitektar Árbæjarkirkju voru þeir Manfreð Vilhjálmsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson.

Arkitektinn Manfreð segir að sólarljósið hafi ráðið miklu um form kirkjunnar. Dagsbirtan, sólarljósið, fellur niður um hinn háa glugga sem rís upp í eilitlum boga og birtan streymir yfir altari kirkjunnar. Glugginn er helsta ytra einkenni kirkjunnar og hinn bratti veggur til hliðar við kirkjudyr og klukknaport. Kirkjan sjálf er öll björt og stílhrein. Í safnaðarsal er stór gluggi með fallegu útsýni yfir Elliðaárdalinn.

Orgel kirkjunnar er úr smiðju Björgvins Tómassonar, orgelsmiðs.

Bænaljósastandur, skírnarfontur og kross

Skírnarfontur kirkjunnar er úr íslenskum grágrýtissteini úr Seláshæð í Árbænum og hefur hann verið látinn halda náttúrulegum útlínum sínum. Steinn þessi kom í skóflu gröfumanns nokkurs sem leist vel á hann og tók til hliðar. Svo flaug honum í hug að steinninn færi vel sem skírnarfontur og hafði samband við prestinn, sr. Guðmund Þorsteinsson, sem var honum hjartanlega sammála. Ofan í steininn er felld skírnarskál sem Dóra Guðbjört Jónsdóttir, gullsmiður, hannaði, en séra Guðmundur Þorsteinsson, fyrrum sóknarprestur Árbæjarkirkju, og kona hans, Ásta Bjarnadóttir, gáfu kirkjunni. Krossinn og altarisstjakar eru sömuleiðis gjöf þeirra hjóna.

Bænaljósastandurinn er gjöf Bræðrafélags Árbæjarkirkju og smíðaður af nemum í málmiðnaðardeild Iðnskólans í Reykjavík.

Altari kirkjunnur og altarisverkið Ljósstafir. Orgel og yfir því þak. Naktar ljósaperur.

Altarisverk Árbæjarkirkju er eftir listakonuna Rúrí (f. 1951: Þuríður Rúrí Fannberg). Verkið er gert úr steyptu kristalsgleri, fölgrænu, og myndar þrjá geisla sem falla niður að altarinu. Stærð verksins er 10x3x0.18 og heitir það Ljósstafir, gert árið 1998. Í kristalsglerinu myndast ljósbrot þá ljósið skín þar í gegn. Verkið er gagnsætt og sagði listakonan að með því væri vísað til hvorutveggja „náttúrunnar og kristinnar trúar.“

Arkitekúr kirkjunnar er einstaklega fallegur og óvenjulegur eins og þessar myndir sýna: 

Ábæjarkirkja sýnir alltaf nýjar hliðar á sér frá nýjum sjónarhornum og er því lifandi hús

Kirkjan er sem klettur í byggðinni og mannlífinu – sem hún og er og á að vera

Sjónarhorn mýktar og grósku

Beinar línur og bogadregnar – stílhreint guðshús

Enn eitt sjónarhornið

Númerataflan og lofttúður – fer bara ágætlega saman

Krossinn kemur einkar vel út á hinum bratta norðurveggi

Ábæjarkirkja  og klukknaport hennar renna saman frá þessu sjónarhorni

Árbæjarkirkja – þessa mynd tók Guðmundur Karl Einarsson

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir