Á kirkjubekknum síðasta sunnudag eftir þrettánda 2023  

Sit og kyrri hugann.
Horfi á logana flökta.
Hneigi höfðuð og hlusta á þögnina
áður en orgelið hljómar.

Syng, hlusta, bið.

Presturinn fer með okkur upp tvö á fjöll.
Fjallið sem Móse kleif og höfuð hans varð uppljómað af ljóma Guðs.
Fjallið sem Jesús ummyndaðist á og klæði hans urðu fannhvít og skínandi.

Guð sýnir lærisveinum sínum skínandi andlit sitt í Kristi.

Geng upp að altarinu.
Þigg brotið brauð og blessað vín.

Geri skál með lófum mínum.
Tek á móti blessunarorðunum.
Helli blessuninni yfir höfuðið.
Hún streymir niður líkama minn og umlykur mig.
Hún fylgir mér út í hversdaginn.

Bara að blessunin sem ég þigg
berist líka til þeirra sem ég mæti í dag.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir