Gleðilegt sumar!
Það er alltaf gleðilegt blessað sumarið hvernig sem viðrar. Landið sem við búum í býður okkur upp á ýmsar tegundir af sumri og við þekkjum þær allar. Sumar þeirra kunnum við vel við og aðrar ekki. Það er bara eins og gengur. Flestir sjá nú veðurkosti landsins þegar öllu er á botninn hvolft.
Sól skín hærra á lofti en áður og öll náttúran ilmar af krafti og fegurð. Manneskjan gengur út í sumarið og vill eiga þátt í fegurð þess og vexti. Hún er líka í heiminum til þess að blómgast og bera ávöxt. Kannski er engin árstíð jafnmikill boðberi frelsisins eins og einmitt sumarið með angan sinni og tækifærum til vaxtar og þroska. Sumarið í sjálfum okkur er eins og hrífandi listaverk sem hver og einn verður að upplifa og skynja á sinn eigin hátt. Sumarið sem kemur í fang þér þegar út í frelsið er gengið og gildir þá einu hvaða árstíð prýðir dagatalið.
Sumarkoman er sá tími þegar brúnin á manneskjunum lyftist upp með feginleika og eftirvæntingu. Þær strjúka af sér vetrardoða og fleygja vorkvíðanum út um opinn gluggann.
Kannski er best að fagna sumrinu með því að halda út í náttúruna, skunda upp hlíðar og fjöll? Endurnýja líkama og sál.
Já, halda út í náttúruna.
Það er þá eins gott að hún sé á sínum stað!
Það gefst alltaf tækifæri til að lýsa yfir stuðningi við náttúruna í orði og á borði. Vissulega er auðveldara að vera stuðningsmaður hennar í orðum en í sjálfri verunni – það þekkja allir. En orð eru til alls fyrst.
Kannski er upplagt tilefni núna til að sýna stuðning við náttúruna í verki með því að fara í Grænu gönguna sem ræst verður af stað í dag við Arnarhól í Reykjavík? Búa sig vel eftir íslensku sumarveðri og finna hvernig sumarið tekur okkur í fangið. Kannski með hlýju? Eða hinum fræga vorsvala? Hver klæðir sig eftir sínum smekk og hreysti til lífs og sálar.
Allir eru búnir að móta sér sína umhverfisstefnu með hversdagslegum vanabundnum athöfnum sínum. Gott er að spyrja sig hvort stefnan sé í lagi? Hvort hún sé gerð með náttúruna í huga eða bara okkur sjálf? Best er að hún þjóni báðum aðilum, náttúrunni og okkur. En það verður að vera jafnræði í þeim búskap. Og réttlæti.
Svo dustum við rykið af umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar og blásum til sóknar: hvetjum alla til umhugsunar um náttúruna því að hún er sköpunarverk Guðs – er það ekki?
Sá frægi Arnarhóll er upphafsreitur Grænu göngunnar og best er að mæta þar kl. 13.30 – eða fyrr. Síðan verður lagt af stað með bros á vör og gengið í Hljómskálagarðinn þar sem göngugörpum, stórum sem smáum, verður fagnað. Síðan stíga einhverjir á stokk og gefa hollt veganesti fyrir göngu hvers og eins til styrktar náttúru Íslands og heimsins.
Græna gangan er sem sé rétt að hefjast!

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: