Hver morgunn er í sjálfu sér öðrum líkur en þó felur hann eitthvað nýtt í sér sem kemur í ljós þegar hann líður. Nóttin er að baki og nýr dagur leysir hana af hólmi. Opin augu horfa mót því sem er nýtt því dagurinn sem kominn er hefur ekki áður sést. Hann er eins og nýtt snjókorn sem svífur til jarðar. Það býr yfir sinni fegurð og bíður þess að bráðna eins er dagurinn. Um leið og hann er kominn er hann á hraðferð til kvöldsins. Hann staldrar í raun og veru stutt við og kannski einmitt vegna þess er dýrmætt að nota hann í stað þess að horfa á eftir honum inn í nóttina eins og hann hafi aldrei látið sjá sig.  

Þannig er hver dagur eins og lítil spegilmynd af lífinu sem kemur í heiminn. Af lífi mannanna sem koma og fara, kynslóðanna sem streyma eftir djúpum farvegi tímans. Á sama hátt og lífið gerir nánast þá kröfu á hendur mönnunum að þeir aðhafist eitthvað, eins gerir dagurinn þá hina sömu kröfu. Svo lengi sem menn hafa heilsu og eru með ráði og rænu ganga þeir út í lífið með það í huga að njóta þess og sinna því sem það býður upp á. Og hver nýr dagur sem bankar upp á í lífi okkar er tilboð um að taka til hendinni. Tilboð um að nota hæfileika, njóta samvista, gera sér dagamun, læra eitthvað nýtt um sjálfan/sjálfa sig og lífið. Reyna að skilja sjálfan/sjálfa sig og lífið – og það er ekki lítið verkefni. 

Dagurinn er nýr – og hann kemur – og fer. Og við göngum inn í þennan tíma, mætum honum eins og gömlum kunningja og horfumst um leið í augu við okkur sjálf; sjáum að hver dagur sem kemur líður furðu fljótt og er horfinn inn í nóttina áður en við vitum af. Í raun er hver maður ríkari af reynslu að hverjum degi liðnum en um leið ögn fátækari af þeim tíma sem hann fær til umráða í lífi sínu.  

Aðventumorgunn 2023.

Aðventan er undarlegur tími og vafinn inn í trúarleg tákn og veraldleg. Það er eins og eitthvað fari af stað með miklum látum og hamagangi. Tími sem er ofinn saman í fjóra sunnudaga sem þramma ákveðnum skrefum til móts við jólahátíð. Sumir líta jafnvel á aðventuna sem rásmark á hlaupabraut lífsins og efnislegra hluta. Menn taka á sprett og stefna til jóla. Og koma móðir og másandi í mark, hníga niður örmagna af þreytu við jólaborðið.  

Ef menn vilja ekki láta efnislegt gæðakapphlaup kafsetja sig þá er ekki fráleitt að íhuga boðskapinn um meistarann frá Nasaret sem hristi upp í heiminum, breytti tímanum með svo augljósum hætti að menn miða ár sögunnar út frá þeim tíma er hann kom í heiminn. Gefi menn sér tíma til að velta boðskapnum fyrir sér og láta hann móta sig eignast þeir nýjan tíma, nýja hugsun og nýtt viðhorf til lífsins. Þeir munu líta hvern dag glaðari augum en áður og vita að líf þeirra er dýrmætt og að hver dagur sem þeim er fenginn að gjöf er fjársjóður. Og enginn tekur þann fjársjóð frá þeim heldur deila þeir honum miklu fremur til annarra manna. Það heitir einfaldlega að aðventan komi til fólks og hið efnislega kæfir ekki hið andlega. Góð aðventa er sennilega þegar efni og andi lifa í sátt og samlyndi þrátt fyrir stormasama sambúð á köflum.

Aðventan undirbýr tímamót sem eru í aðsigi. Þau tímamót eru með margvíslegum hætti í nútímanum. Efst ber vitaskuld að fjölskyldur hittast og njóta samvista, gleðjast saman og hver maður sýnir öðrum virðingu og kærleika. Og ekki er verra að hitta fyrir sjálfan/sjálfa sig í þessum félagsskap og kynnast þeirri persónu ögn betur. Setja trúarlegan boðskap í samhengi eigin lífs, sjálfsskoðunar og tilgangs.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir