Aldrei sem nú hafa jafn margar hugmyndir og skoðanir verið uppi um lífið og tilveruna. Það er ánægjuefni út af fyrir sig að pælt er í þessari ferð okkar hér í heimi. Samtími okkar er nánast hlaðið borð í samkvæmi lífsins er svignar undan girnilegum hugmyndum og erfitt getur verið að neita sér um að smakka á þeim. Nýir réttir eru alltaf spennandi í augum margra þó aðrir kjósi fremur það sem þeir kannast við og vita af reynslu að það fer vel í hugmyndamaga þeirra. Einn af þeim réttum sem er á borðum okkar er kristin trú og kannski ekki svo ólík heitu flatbrauði og feitu hangikjöti – eða harðfiski. Eitthvað sem stendur alltaf fyrir sínu.

Stundum er sagt að kristin trú standi höllum fæti í hugmyndaflaumi samtímans. Hún sé nánast hliðarréttur á allsnægtaborði Vesturlandabúans sem hverfi í skuggann af nýstárlegum réttum og frumlegum. Jafn sjaldséður og bárað hringform með niðursoðnum ávöxtum í hlaupi. Fólk leiði hugann almennt sjaldan til kristinnar trúar. Í því sambandi er bent á að margt í sögu Jesú Krists sé á reiki hjá fólki enda þótt það lumi á einstaka sögubita sem snertir líf hans og starf.

Þegar vindar ýmissa lífsviðhorfa blása um kinnar okkar kunnum við að spyrja um þýðingu kristinnar trúar fyrir okkur. Hvað það sé sem geri okkur að kristnum manneskjum og hvers vegna við köllum okkur kristin. Kristin trú er á margan hátt ólík ýmsum skyndibitum þeirra lífsviðhorfa sem okkur er boðið að narta í sem og hinum flóknari réttum krydduðum á ýmsa vegu.

Þegar við reynum að skilja okkur sjálf sem kristnar manneskjur í erilsömum samtímanum spyrjum við oft um samspil þess sem var og þess sem er. Alls konar orð og hugtök fylgja samfélagi okkar. Kristin trú getur tengst þeim og þarf ekki annað en að nefna réttlæti, kærleika, frið og umhyggju. Líf og dauða. Eilífð. Í orðum meistarans frá Nasaret er öll þessi hugtök að finna bæði í því sem hann sagði og gerði. Kristin manneskja þekkir þau og þar sem þau eru komin frá meistaranum sjálfum er vægi þeirra meira en í orðum dauðlegra manna. Rót þeirra er hjá honum, í huga Guðs. Kristin trú í nútímanum kallast á við það sem eitt sinn var og við lesum frásagnir af lífi meistarans frá Nasaret. Fylgjum honum um mannlífssvið sem löngu er horfið en þó svo þá verða atburðir sem þar gerðust lifandi fyrir hugskotssjónum okkar og orð sem þar voru mælt eru sem töluð til okkar. Fortíð og nútíð fléttast saman í einn þráð. Hér og nú.

Kristna trú leitumst við að skilja í ljósi nútímans og hins sögulega vegna þess að höfundur lífsins hefur stigið inn í sögu okkar og sína eigin. Spinnur ævivefinn með okkur. Þessi saga er orðin nokkuð löng og of löng fyrir hámhorf. Eins og í mörgum öðrum góðum sögum gengur þar á ýmsu. Á þessari ferð um veg lífsins sem hvorki er lagður í stokk né göng heldur í okkur sjálfum er saga meistarans frá Nasaret leiðakerfið. Við rýnum í ýmsar línur þess. Sumar eru daufar og aðrar skýrar – enn aðrar á eftir að uppfæra. Stundum er tíminn í kerfinu meira að segja býsna afstæður. Jafnvel ekki til. En okkar er að lesa úr þessum línum og túlka. Við erum á ferð í lífinu og höfum traustan leiðsögumann með okkur. Við getum kallað okkur kristnar manneskjur þegar við hlustum á hann, pælum í orðum hans og treystum.

Kristin trú er hvorki tækifærissinnuð né væmin. Hún lætur ekki undan síga, gefst ekki upp frekar en kærleikurinn. Hún lætur ekki heldur múra sig inni í ofstæki samtíningslegrar bókstarfstrúar eða logsjóða sig við dularfullar kennisetningar.

Trúin er lifandi viðfangsefni okkar.

Kristin manneskja leggur ekki frásagnir af Jesú Kristi á hilluna vegna þess að hún sé búin að lesa þær einu sinni og finnst erfit að skilja margar þeirra. Ekki frekar en að fótboltakappi sem leggur skóna sína á þessa frægu hillu hætti að horfa á fótbolta. Kjarni trúarinnar er þessi persóna: Jesús Kristur; og frásagnirnar af honum eru ekki lesnar í skyndi einu sinni eins og jólaverksmiðjureyfari. Þær eru nefnilega sígildar í anda Njálu og Shakespears en ólíkt djúpri speki þeirra geyma þær dýpri speki eða speki spekinnar: Sögu Guðs og manns í heiminum. Sögu sem hver og einn þarf að túlka – brjóta orð og hugtök til mergjar. Þessi saga segir frá grundvelli trúarinnar og þeim grunni sem lífið hvílir á frá sjónarhóli hennar. Hún verður lifandi þegar hún er lesin og iðkuð, íhuguð og krufin. Einu sinni og oftar. Spyrja þarf spurninga þegar texti er lesinn, láta textann spyrja sig og lesa sig – inn í nútímann. Á þann hátt verður trúin lifandi samtal við Guð en rykfellur ekki eða liggur bundin í ógæfulegu samsafni vanahugmynda.

Trúin mótar viðhorf okkar til lífsins sem felst í því að við þorum að segja upphátt og kinnroðalaust að við séum kristnar manneskjur, reynum að minnsta kosti að halda okkur á þeim vegi. Já, svo hátt að það yfirgnæfir glasaglamm samkvæmisins þar sem margar freistandi lífsskoðanir fljóta í hversdagsleikanum.

Er nokkuð betra en vangaveltur um trú með góðu og sterku kaffi á mjúkum og fuglglöðum júlímorgni? Jafnvel þótt rigni?

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir