Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Og María sagði:
Önd mín miklar Drottin
og andi minn gleðst í Guði, frelsara mínum.
Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar,
héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
Því að mikla hluti hefur Hinn voldugi við mig gert
og heilagt er nafn hans.
Miskunn hans við þá er óttast hann varir frá kyni til kyns.
Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum
og drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
Valdhöfum hefur hann steypt af stóli
og upp hafið smælingja,
hungraða hefur hann fyllt gæðum
en látið ríka tómhenta frá sér fara.
Hann hefur minnst miskunnar sinnar
og tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
eins og hann hét feðrum vorum,
Abraham og niðjum hans, eilíflega.

Lúkasarguðspjall 1. 46-56

Hundrað orða hugleiðing

Hún gat sannarlega tekið undir með guðsmóðurinni að sæl væri hún að fæða þann öðling í heiminn sem meistarinn frá Nasaret var. Oft hafði hún íhugað beinskeyttan boðskap guðsmóðurinnar og fundist hann vera róttæk mannréttindayfirlýsing og í hjarta sínu tók hún undir með henni enda hafði hún alltaf verið í láglaunastörfum. Kannski var hún einn af smælingjunum sem yrði hafinn upp nema verðbólgan sem ku víst vera henni að kenna stoppaði það. Hún var gæðakona og gat ekki annað en hugsað vel um fólk þó að margir drembilátir sæju hana ekki þar sem hún brosandi ýtti skúringarvagninum á undan sér.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir