Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. Þér eruð vinir mínir ef þér gerið það sem ég býð yður. Ég kalla yður ekki framar þjóna því þjónninn veit ekki hvað húsbóndi hans gerir. En ég kalla yður vini því ég hef kunngjört yður allt sem ég heyrði af föður mínum. Þér hafið ekki útvalið mig heldur hef ég útvalið yður. Ég hef ákvarðað yður til að fara og bera ávöxt, ávöxt sem varir svo að faðirinn veiti yður sérhvað það sem þér biðjið hann um í mínu nafni. Þetta býð ég yður, að þér elskið hvert annað.

Jóhannesarguðspjall 15. 12-17

Hundrað orða hugleiðing

Sóknarnefndarformaðurinn vildi hætta við aðstöðuhúsið en ekki gjaldkerinn. Aðrir hummuðu nema ritarinn sem vildi fresta málinu. Þung orð féllu og spurt var um sjálfboðaliðastarf. Gæflyndur presturinn sagði það vera úrelta hugmynd. Smíðin væri sérfræðingsverkefni enda húsið ofurumhverfisvænt. Gjaldkerinn barði í borðið og formælti umhverfisstefnu safnaðarins. Einhver sagði lágróma að ekki mætti gleyma kærleikanum sem meistarinn frá Nasaret talaði um og presturinn samsinnti því innilega. Meistarinn hefði kallað þau í vináttubandalag sem væri stöðugt átaksverkefni eins og plokkdagurinn. Það væri reyndar snúið að boða fagnaðarerindið út af aðstöðuleysi í plássinu. Formaðurinn sagði aðstöðuna ekki hafa verið beysna við krossinn á Golgata.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir