Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Og hann sagði við þau: „Meðan ég var enn meðal ykkar sagði ég ykkur: Allt sem ritað er um mig í lögmáli Móse, spámönnunum og sálmunum á að rætast.“ Síðan lauk hann upp huga þeirra að þau skildu ritningarnar. Og hann sagði við þau: „Svo er skrifað að Kristur eigi að líða og rísa upp frá dauðum á þriðja degi og að prédika skuli í nafni hans öllum þjóðum að taka sinnaskiptum og þiggja fyrirgefningu synda og hefja það í Jerúsalem. Þið eruð vottar þessa. Ég sendi ykkur andann sem faðir minn hét ykkur en verið kyrr í borginni uns þið íklæðist krafti frá hæðum.“ Síðan fór hann með þau út í nánd við Betaníu, hóf upp hendur sínar og blessaði þau. En það varð, meðan hann var að blessa þau, að hann skildist frá þeim og var upp numinn til himins. En þau féllu fram og tilbáðu hann og sneru aftur til Jerúsalem með miklum fögnuði. Og þau voru stöðugt í helgidóminum og lofuðu Guð.

Lúkasarguðspjall 24. 44-53

Hundrað orða hugleiðing

Þegar hann heyrði í Biblíusögutíma kennarann segja frá uppstigningu meistarans frá Nasaret til himna heillaðist hann strax af frásögninni og fannst hún vera mögnuð. Hún sló út allar sögur sem hann las og ofurspennandi ævintýri drengjahetjunnar Tom Swift um heiðloftin í eldflaugum eða í undratækjum á jörðu niðri. Þó að hann væri maður tækni og eðlisfræði þá fannst honum himinninn geta rúmað allt. Honum hafði fundist fyrsti rússneski geimfarinn vera tilfinningasljór að finna ekki fyrir almættinu á sporbraut um jörðu, geggjaðasta útsýnisstaðnum. Uppstigningardagur meistarans var í miklu uppáhaldi hjá aðdáanda Tom Swift og himnaförin gat rímað við allt trúartilfinningasvið hans.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir