Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Meistarinn frá Nasaret skrollaði í gegnum hann á augabragði. Sá venjulegan mann sem gaf barni sínu það sem beðið var um, já, fisk en ekki höggorm. Þó að hann væri gallagripur sem duttlungafull hversdagsleg sýndarmennska afhjúpaði var honum ekki alls varnað. Hann stóð ætíð fast á sínu eins og hundur á roði og var því mörgum til ama. Yndislegt milliríkjasamband milli mannsins og almættisins en stundum eldfimt. Þrjóska væri höfuðkostur enda fengist heilagur andi ekki eins og uppboðsvarningur og kærkomin var hvatningin um að knýja dyra í himnaríki til að fá lykilorðið. Ganga svo fagnandi veg lífsins með meistaranum eina.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: