Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Daglega skynjaði hann barn heimsins í sjálfum sér sem hafði guðleg skilríki fyrir því að meistarinn frá Nasaret væri fararstjórinn. Samgöngukerfi heimsins var völundarhús og hann var villugjarn en meistarinn gafst aldrei upp á honum. Sjálfur vissi hann að hversu tæpt sem teflt væri á ferðalaginu yrði alltaf sneitt hjá glötuninni. Logandi sárt samviskubit fylgdi honum um stjórnmálavettvanginn þegar hann ögraði sjálfum sér og meistaranum. En hann var barn heimsins og týndi stundum guðlegu skilríkjunum sínum sem varðveittu hann frá öllu illu. Þegar hann þaulleitaði í hugarfylgsnum sínum skaut upp orðinu sem meistarinn hafði gefið honum og hamingjuleiðin blasti við.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: