Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Hún hafði alltaf reynt að missa ekki sjónar á frelsaranum á langri ævi. Hann var ekki beint vinsæll í fjölskyldu hennar og margir sem höfðu uppi stór orð og hæðnisleg í garð hans. Trú var metin til fárra fiska þó svo að fjölskyldan lifði á fiski sem gaf vel í aðra hönd. Þeirra hamingjuleið var sjávarútvegurinn en hún vildi ganga veg sannleikans og lífsins. Aldrei hafði hún tapað áttum neitt alvarlega á þessum vegi. Fátt hafði hún óttast á lífsleiðinni annað en að missa börnin sín og móðurhjarta hennar hafði skelfst við þá tilhugsun. Trúin var besta uppskriftin að lífinu.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: