Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: „Ég vegsama þig, faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt. Allt hefur faðir minn falið mér og enginn þekkir soninn nema faðirinn, né þekkir nokkur föðurinn nema sonurinn og sá er sonurinn vill opinbera hann.

Matteusarguðspjall 11. 25-27

Hundrað orða hugleiðing

Honum fannst meistarinn frá Nasaret standa með sér í annasömum hversdagsleikanum þar sem hann bætti sprungin dekk eða umfelgaði. Þau voru mörg handtökin við dekkjaskipti og jafnvægisstillingar þar sem þurfti ekki nema fáein lítil grá lóð inn á felguna til að ná jafnvægi. Honum fannst trúin vera stærsta marglita lóðið og hún hafði komið jafnvægi á líf hans. Ekki flóknara en það. Hann hafði aldrei botnað í samtvinnuðum pælingum orðfimra spekinganna um meistarann og sagði við sjálfan sig að meistarinn og andi hans væru jafnvægið í lífi sínu. Vonandi fyndu sem flestir þolgóða jafnvægisstillingu sem hjartslátt skaparans í meistaranum einum.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir