Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Auðvitað var hann stuðningsmaður meistarans frá Nasaret. Það vissu allir. En hann var ekki með guðsorð á vörum alla daga heldur trúði á sinn hátt. Helst vildi hann nú sitja einn úti í náttúrunni og finna andann eilífa umvefja sig í sköpunarverkinu. Meistarinn hafði mælt með ákveðinni lífsleið og dregið hana upp í stórum dráttum. Frábært lífsplan og hann setti það á ísskápshurðina sér til minnis. Meistarinn lifði og hafði sagt honum að hann myndi lifa. Hann var ekki munaðarlaus þó á ýmsu gengi en skilaboð frá meistaranum beindu honum aftur á lífsleiðina þegar hann týndi henni í andleysi sínu.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: