Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin

Guðspjall

En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gerð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar.
Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs, að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni sem var þunguð. En meðan þau voru þar kom sá tími er hún skyldi verða léttari. Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu af því að eigi var rúm fyrir þau í gistihúsi.

En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir en engillinn sagði við þá: „Verið óhræddir, því, sjá, ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu.“
Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita sem lofuðu Guð og sögðu:
Dýrð sé Guði í upphæðum
og friður á jörðu og velþóknun Guðs yfir mönnum.

Lúkasarguðspjall 2.1-14

Hundrað orða hugleiðing

Þegar hún ók ræstivagninum inn á skrifstofuna var augljóst að fólk hafði skemmt sér vel í jólahlaðborðinu. Hún fór með moppuna rösklega yfir gólfið. Óvart rak hún moppuskaftið í hillu og úr henni flaug litla handgerða silfurjötusettið á gólfið. Henni brá í brún og tók að leita að fjárhirðum, lömbum, Maríu og Jósef – og náttúrlega Jesúbarninu. Fann allt nema Jesúbarnið. Þegar hún lagðist til hvíldar um kvöldið í gististað ræstingakvennanna í Sylluhöfða rann undan breiðu hárbandi hennar Jesúbarnið í jötunni. Hún hafði ekki orðið vör við að það hafnaði þar. Horfði á hann hugsi í lófa sér og sofnaði síðan.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir