Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Hún hafði oft virt þetta listaverk fyrir sér og dáðst að krafti sjómannsins sem hélt í hönd hins drukknandi manns sem svall af lífsvilja. Líkaminn var tryllingslega sveigður og höfuðið teygt upp til himins. Eða festi hann vonaraugu sín á kröftugan bjargvættinn sem horfði biðjandi augum í himindjúpið? Þetta voru sterkir menn og hrammur grængolandi regindjúpsins náði ekki að svelgja þá í sig. Lífsviljinn og einbeitt bjargarvon faðmast saman svo lífið komist í höfn. Hún laut höfði við listaverkið sem huggaði hana og bað til meistarans frá Nasaret að hann bjargaði henni því hversdagslegur sálarháski var ekki langt frá henni.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: