Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin.

Guðspjall

Enn sagði Jesús: „Þá er líkt um himnaríki og tíu meyjar sem fóru til móts við brúðgumann með lampa sína. Fimm þeirra voru fávísar en fimm hyggnar. Þær fávísu tóku lampa sína en höfðu ekki olíu með sér en hinar hyggnu tóku olíu með á könnum ásamt lömpum sínum. Nú dvaldist brúðgumanum og urðu þær allar syfjaðar og sofnuðu.
Um miðnætti kvað við hróp: Brúðguminn kemur, farið til móts við hann. Þá vöknuðu meyjarnar allar og tóku til lampa sína. En þær fávísu sögðu við þær hyggnu: Gefið oss af olíu yðar, það er að slokkna á lömpum vorum. Þær hyggnu svöruðu: Nei, hún nægir aldrei handa öllum. Farið heldur til kaupmanna og kaupið handa yður. Meðan þær voru að kaupa kom brúðguminn og þær sem viðbúnar voru gengu með honum inn til brúðkaupsins og dyrum var lokað.
Seinna komu hinar meyjarnar og sögðu: Herra, herra, ljúk upp fyrir oss. En hann svaraði: Sannlega segi ég yður, ég þekki yður ekki.
Vakið því, þér vitið ekki daginn né stundina.

Matteusarguðspjall 25.1-13

Hundrað orða hugleiðing

Aðeins tvennt og þú heldur á könnunni. Trú eða ekki trú. Olía eða ekki olía. Þú þekkir týpuna. Sem kemur of seint og rífur í þig og segir: Hvað hefur gerst? Tekur snúruna úr tölvunni þinni og segir: Ég veit ekki um mína. Allt í einu er komin aukataska: Tekurðu hana ekki með? Ég þarf að fá mér smók. Svo var búið að loka hliðinu þegar þú komst og hrópaðir til mín: Ég gleymdi mér. En kannan er hérna, geturðu fyllt á hana? Það var þetta með hegðun líkamans tóma sem skáldið talaði um. Svo flaug ég heim í brúðkaupið.

Viltu deila þessari grein með fleirum?

Aðrar fréttir