Guðspjallið lesið og síðan hundrað orða hugleiðingin
Hundrað orða hugleiðing
Hann sagðist vera kappsamur maður og fastheldinn, sem mörgum mislíkaði. Rétt forgangsröðun á ólgandi lífsorkunni var mikilvæg en mestu máli skipti að standa við allar skuldbindingar sínar. Hann var hallur undir það sem kallast að vera kristin manneskja vegna menningar og mannúðar. Í baráttunni fyrir betri heimi átti góður málstaður í vök að verjast og hefði oft hvergi höfði sínu að að halla eins og sjálfur meistarinn frá Nasaret. Einbeitt fylgd við róttækan kærleiksboðskap meistarans skákaði öllu út í horn, hvort heldur það voru jarðarfarir eða kirkjuganga. Hamingja heimsins fælist í því að horfa fram á við með réttlætisaugum meistarans.

Eigandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: